lærummeira.is
Mælingar - Stöðvavinna (Stig 2)
Mælingar - Stöðvavinna (Stig 2)
Couldn't load pickup availability
🧮✨ Stöðvavinna í mælingum – 6.-7. bekkur ✨🧮
Skemmtileg og verkleg stöðvavinna þar sem nemendur læra að mæla, áætla og bera saman 📏⚖️ Unnið er með mælieiningarnar: mg, g, hg og kg, ml, cl, dl, l, mm, cm dm, m, km.
Rímar vel við 5. kafla í Stiku 3b.
Verkefnið nær yfir þyngd, rúmmál, lengd.
👩 Nemendur vinna í hópum
✏️ Áætla og mæla
🤝 Ræða og rökstyðja niðurstöður
🎯 Styður skilning á mælieiningum
✔️ Tilbúið til notkunar
✔️ Skýrar leiðbeiningar
✔️ Virk þátttaka nemenda
Fullkomið verkefni til að gera stærðfræði lifandi og skemmtilega 💥📐
📄 Rafræn vara tilbúin til útprentunnar.
Hvað er gert í hverri stöð?
⚖️ Stöð 1 – Þyngd
Nemendur áætla þyngd hluta, vigta þá og bera saman hvað þau áætluðu og raunverulega þyngd (mg, g, hg og kg).
💧 Stöð 2 – Rúmmál
Nemendur mæla lítra og millilítra með vatni og kanna tengsl milli ml, cl, dl og lítra.
📏 Stöð 3 – Lengd
Nemendur mæla lengdir (mm, cm, dm, m og km), bera saman hæð og faðm og nota bæði formlegar og óformlegar mælieiningar.
🧠 Stöð 4 – Veldu rétt og breyttu mælieiningunum
Nemendur þjálfa sig í að breyta einni mælieiningu yfir í aðra. Hugmyndavinna þar sem nemendur velja réttar mælieiningar og ræða af hverju þær passa.
⚖️ Stöð 5 – Jafnvægi
Nemendur leysa jafnvægisþrautir með jafnvægisvog og læra að jafna þyngdir. Klippa út og líma hluti á jafnvægisvogir.
Share
