Skilmálar: Áskrift kennara

Skilmálar fyrir kennaraáskrift

Með kaupum á kennaraáskrift samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála:

1. Um áskriftina:
Kennaraáskrift veitir einum kennara aðgang að öllum rafrænum kennsluverkefnum á lærummeira.is á meðan áskriftartímabilið varir. Aðgangurinn er persónubundinn og eingöngu ætlaður þeim kennara sem skráður er fyrir áskriftinni.

2. Notkunarheimild:

Efnið má nota í kennslu hjá þeim kennara sem er skráður fyrir áskriftinni.

Kennari má prenta og nota efnið með sínum eigin nemendum, til dæmis í bekkjarkennslu, hópastarfi eða stuðningsnámi.

Ekki er heimilt að deila rafrænum skrám, verkefnum eða aðgangsupplýsingum með öðrum kennurum, starfsfólki, skólum eða öðrum aðilum.

3. Aðgangur:

Ein áskrift = aðgangur fyrir einn kennara.

Aðgangsupplýsingar eru persónubundnar og ekki má deila þeim með öðrum.

Þegar áskrift rennur út eða henni er sagt upp lokast áskriftaraðgangurinn og aðgangur að efni í gegnum áskriftina fellur niður.

4. Brot gegn skilmálum:
Ef brotið er gegn þessum skilmálum, svo sem með því að deila aðgangi eða dreifa rafrænu efni til annarra, áskilur lærummeira.is sér rétt til að:

  • loka fyrir aðgang án endurgreiðslu,
  • krefjast greiðslu vegna óheimillar notkunar og/eða dreifingar,
  • og/eða segja upp áskrift.

5. Endurnýjun áskriftar:
Áskrift endurnýjast sjálfkrafa samkvæmt því áskriftartímabili sem valið er, nema henni sé sagt upp fyrir næstu endurnýjun. Gjald fyrir næsta áskriftartímabil er þá innheimt samkvæmt gildandi áskriftarleið.