lærummeira.is
Lestrarleikur 📚
Lestrarleikur 📚
Couldn't load pickup availability
Lestrarleikur – snúðu, finndu og lestu 📚
Skemmtilegur lestrarleikur þar sem börn snúa bréfaklemmu, skoða myndina sem hún lendir á og finna rétta orðið í orðatöflunni. 🔍✨
📖 Æfðu lestur og orðþekkingu
🎯 Tengdu saman myndir og orð
✏️ Tvö mismunandi þyngdarstig
🌈 Fæst bæði í lit og svarthvítu
Skemmtileg leið til að efla lestrarfærni í gegnum leik!
🖨️ PDF – tilbúið til útprentunar
Hvernig virkar leikurinn?
1) Festið bréfaklemmu við miðju hringsins og notið blýant til að búa til einfalda ör.
2) Spilarinn snýr bréfaklemmunni og skoðar myndina sem hún lendir á. Síðan þarf hann að finna og lesa orðið sem passar við myndina í orðatöflunni og merkja við það, til dæmis með spilapeningi eða lit.
3) Leikurinn heldur áfram þar til öll sex orðin hafa fundist.
Leikurinn er í tveimur þyngdarstigum og inniheldur fjölbreytt orð til lestraræfinga.
Share
